Æðardúnsængur


Æðardúnsæng
Eign til lífstíðar

Æðardúnsængur frá Skálanesi eru unnar í takmörkuðu magni á ári hverju. Þær eru fylltar með dún úr varpi því sem þrífst næst húsinu á hverju vori og er sinnt af eigendum jarðarinnar. Sængurnar eru sérmerktar jörðinni ásamt öllum upplýsingum um umhirðu fyrir eigendur þeirra. Aðeins er æðardúnn í sængunum frá Skálanesi. Engir milliliðir eru til staðar í sölu á vörum okkar svo að verðið á sængunum er hagstætt miðað við að versla vöruna t.d. í verslun. Hægt er að panta sængurnar í ýmsum stærðum án nokkurs aukakostnaðar.

Comments Off

Comments are closed at this time.