Náttúra & menning
Friðland við bæjardyrnar
Húsið að Skálanesi er í miðju 1250 ha einkafriðlands. Á jörðinni má finna vistkerfi og búsvæði einkennandi fyrir Austurland, þar á meðal helstu tegundir flóru og faunu sem og einhverjar sjaldgæfari tegundir.
Ef þú gengur í nokkrar mínútur frá húsinu þá ertu kominn niður í fjöru og getur skoðað sjófuglavarpið sem telur þúsundir fugla í bjarginu, eða þú stendur í miðju blómaengi. Þetta er aðeins það sem stutt er frá húsinu. Annað sem finna má á jörðinni er t.d. fossar, fannir, hreindýr, áhugaverð jarðfræði og stórt kríuvarp.
Yfir 90 tóftir hafa verið skráðar á jörðinni. Þær eru taldar spanna meira og minna samfellda búsetu frá landnámi. Tóftirnar eru flestar þaktar gróðri og tilvaldar til að halla sér að og íhuga sjálfsþurftarbúskap fyrri tíma og daglegt líf þeirra sem af landinu lifðu
Hver sá sem hefur áhuga á fuglum hefur nóg tækifæri til að virða fyrir sér einhverja af þeim 47 tegundum fugla sem búa á eða fara um svæðið árlega. Tjarnirnar nærri húsinu eru vel nýttar af æðarfugli þar sem um 600 pör halda til. Í maí og júní er varpinu sinnt og dúnninn hirtur og þurrkaður til notkunar í kodda og sængur. Þar sem að varpland fuglanna er svo nærri húsinu má fylgjast í návígi við þá beint út um gestaherbergisgluggana. Til að nefna nokkrar tegundir sem líklegt er að sjá þannig má telja upp:Jaðrakan, lóu,smyril, kríu, grágæs, æðarfugl og jafnvel kemur fyrir að fálki eigi leið um.
Comments Off
English
Íslenska
Við erum á Facebook