Rannsóknir & miðlun
Viltu læra meira
Frá stofnun Skálanesseturs hafa fagleg vinnubrögð í öflun upplýsinga verið eitt af helstu viðfangsefnum starfseminnar ásamt umhverfisvernd og sjálfbærri ferðaþjónustu. Sífellt er unnið að því að treysta þær akademísku stoðir sem upplýsingamiðlun og umhverfistúlkun okkar þarf að byggja á. Til þessa höfum við unnið með með fjölda ólíkra aðila, t.d. starfsmenntaverkefnu á vegum ESB, starfað með hópum háskólanema í rannsóknardvöl hjá okkur, með sjálboðaliðum í umhverfismálum og fjölda ferðamannahópa.
Við reynum að tryggja að hvert verkefni á Skálanesi sem unnið er að stuðli að skýrari heildarmynd á staðbundinni þekkingu en einnig að gestir okkar fái upplýsingar um tilgang setursins og þeim verkefnum sem það stendur fyrir.
Neðar á síðunni eru sum af þeim viðfangsefnum sem rannsökuð hafa verið eða unnin að á fjölbreytilega máta.
Nokkur viðfangsefni sem hafa verið eða er verið að rannsaka og eða vinna að á Skálanesi:
| Rannsóknir •Fuglatalningar •Lúpína (Lupinus nootkatensis) •Endurheims skógar •Fornleifafræði ( fornleifakönnun) •Jarðfræði •Ferðaþjónusta •Vistfræði •Sjálfbærni •Fuglafræði •Sjávarlíffræði •Menningarsaga |
Handverk •Torf og grjóthleðsla •Æðarrækt •Fiskverkun •Praktísk umhverfisvernd •Matvælareyking •Skógrækt og vistendurheimt |
Dæmi um viðfangsefni til rannsókna eða þjálfunar
Fyrir utan þau atriði sem finna má á listanum til hægri er í raun um endallausan lista af viðfangsefnum að ræða þegar unnið er út frá setrinu. Helstu viðfangsefnin eru hér til hliðar. Listinn er þó engan veginn tæmdur og starfsemin byggir á sveigjanleika og geta er til staðar til að fleyta hugmyndum og verkefnum á hærra stig.
Ýmisskonar handverk er einnig hluti af starfsemi okkar sem gestir geta tekið þátt í. Helstu verkefnin snúa að nútímanotkun og iðkun á eldri verkkunnáttu og handverki.
Aðstaða og útbúnaður
Húsið er vel Búið til að sinna þörfum gesta sem dvelja hjá okkur skemmri eða lengri tíma. Að neðan er listi yfir þau gæði sem eru til staðar.
•16 Kojurúm – 4 manns í hvert herbergi
•Fullbúið eldhús
•Rúmgott og vel búið þvottahús
•Sístækkandi bókasafn
•Tölvur með takmörkuðum netaðgangi
•GIS kerfi og GPS tæki
•Grunnáhöld í rannsókir
•Skyndihjálpartöskur
•Viðvera starfsmanna allan auglýstan opnunartíma.
•Rúmgóður skáli til fund og málþinga
•Bátar
•Vel útbúnir jeppa
•Útilegubúnaður fyrir 16 manns.
Fyrir utan þau atriði sem nefnd eru að ofan má geta þessað að starfsfólk setursins er með fjölbreytta menntun, reynslu og þekkingu s.s: Sagnfræði, vistfræði, landfræði, jarðfræði, ferðaþjónustu og umhverfismálum. Að auki má nefna að Skálanes býr að traustu og víðfemu tengslaneti innan- sem utanlands sem við nýtum okkur þegar þörf er fyrir sérfræðiþekkingu fyrir starfsemi á setrinu.
Setrið veitir styrki til að ýta undir rannsóknir og vöktun á svæðinu . Þeir eru í formi niðurgreiddrar gistingar, fæðis og aðstöðu. Styrkirnir eru sniðnir að þörfum hvers og eins verkefnis. Vinsamlega hafið samband ef óskað er eftir frekari upplýsingum
Comments Off
English
Íslenska
Við erum á Facebook