Um Skálanes
Óbyggðir, dýralíf og menning
Skálanes, Náttúru og Menningarsetur starfar í heimilislegu húsi staðsettu innan eigin einka náttúruverndarsvæðis í mynni Seyðisfjarðar á Austurlandi. Mikil fjallasýn, stærðar fuglabjörg, rekastrendur og graslendi rammað inn af hafinu gera Skálanes tilvalið til afslöppunar, lærdóms og íhugunar í áhugaverðu umhverfi.
Skálanes, Náttúru- og Menningarsetur, er tilvalið fyrir þá sem vilja læra um Austurland og kynna sér umhverfi og menningu svæðisins. Við erum fullviss um að dvöl á staðnum skilur eftir sig ekki einungis frekari þekkingu á svæðinu heldur einnig góðar minningar, upplifanir og reynslu.
Á Skálanesi er gestum aðgengileg sú þekking sem er til staðar á staðnum, hvort sem er á rituðu máli, frásögn eða með samskiptum við einhvern af þeim fjöldamörgu hópum sem sækja okkur heim eða starfa á setrinu við rannsóknir, vöktun eða starfsmennt á hverju sumri. Viðfangsefni starfseminnar skapar deiglu hugmynda og þekkingar á fjölbreyttum sviðum s.s. vistfræði, náttúrufræði, sagnfræði, fornleifafræði, umhverfismála, hefðbundins handverks og svo mætti lengi telja. Þekkingu á þessum viðfangsefnum er miðlað til gesta eftir óskum þeirra.
Staðsetning
Við erum á Seyðisfirði á austurlandi Íslands.

Frá Seyðisfirði þarf að ferðast 17km út með firðinum en athugið að síðustu 4km eru 4X4 jeppavegur en annars er það brúuð gönguleið.
Comments Off
English
Íslenska
Við erum á Facebook