Þjónusta & verð
Gisting, matur og leiðsögn
Húsið var byggt 1927. Heilsársbúsetu lauk þar á sjöunda áratug síðustu aldar en húsið er nýlega endurbyggt með viðbótum. Þar er þrifalegt, hlýtt og vel útbúið heimili. Gestaherbergi fyrir 4 eru tvö með salerni og einkasvölum með útsýni yfir fjöllin, hafið og himinn.
Maturinn er yfirleitt útbúinn úr hráefni af svæðinu í hefðbundum búningi en gjarnan með tilvísun í nýrri strauma og stefnur í matargerð. Við nýtum okkur landið og umhverfið til að bjóða upp á glænýjan fisk, lambakjöt, hreindýrakjöt og annan staðbundinn mat. Sem gestur munt þú einnig fá tækifæri til að bragða á heimareyktu kjöti og fiski úr torfreykhúsi okkar.
Í húsinu eru flest hefðbundin gæði nútímans til að gera dvöl þína eins þægilega og unnt er. Þar má nefna meðal annars, sístækkandi bókasafn, betri stofu með kamínu, en tilvalið er að ylja sér þar við eldinn eftir langan og góðan dag. Þar er einnig þvottahús, sturtur og bað, sána og heitur pottur sem eru tilvalið til að nýta. Gott er að fá sér léttvínsglas og upplifa nætursólina fjarri ys og þys eða horfa á norðurljósin án ljósmengunar frá þéttbýli.
Verðskrá
- Gisting í 4 manna herbergi með morgunverði 6700 IKR
- Fullt fæði og gisting 11500 IKR
- Leiðsögn á klukkustund 3800 IKR
- Hádegisverður 1600 IKR
- Kaffi og smurbrauð / kaka 1200 IKR
- Kvöldverður 3200 IKR
- Börn 0-4 gista og snæða frítt
- Börn 5-14 njóta 50% afsláttar á allri þjónustu
Stefna okkar er sú að starfsemin sé eins sjálfbær sem og umhverfisvæn og unnt er. Þetta á við um öll verkefni og framkvæmdir. Við erum ávallt að reyna að bæta okkur og ábendingar þínar eru vel þegnar. Tíu prósent innkomu af starfsemi fyrirtækisins fer í vist-, umhverfisvernd og til rannsókna því tengdu. Við dvöl hjá okkur sérðu árangur þessarar stefnu.
Ef þörf er á er hægt að sækja gesti inn á Seyðisfjörð en það kostar 8000 IKR á hvert ökutæki og þarf að bóka fyrirfram.
Comments Off
English
Íslenska
Við erum á Facebook