Vetur
Frá miðjum september til miðs maí er hægt að dvelja í algerum friði og ró að Skálanesil. Á staðinn koma engir gestir nema þú og veturinn leggst yfir hægt og rólega. Dýralífið skiptir um ham og á hverjum morgni má sjá nýjar slóðir í snjónum eftir ref. Rjúpan og sólskríkjan fylgja snjólínunni í fjallinu en hreindýrin bíta hátt uppi allt þar til seinni part vetrar þegar snjóþyngsli neyða þau neðar í brekkurnar. Vegurinn verða ófær seinni part desember nema fyrir sérútbúna jeppa og snjósleða. Húsið er einangrað, kynnt með rafhitun, er með kamínu, heitum potti og sánahúsi sambyggðu við sólpall. Heimsókn á Skálanes að vetri er tilvalin til afslöppunar, íhugunar eða til vinnu í þægilegu umhverfi.
Dvöl hjá okkur að vetri sameinar hóflega krefjandi leiðangur og kyrrlátt umhverfi sem gerir vetrarheimsókn gefandi og einstaka upplifun.
Vetrardvöl
•Vetrar, náttúru og dýralífsmyndataka
•Göngskíði og fjallamennska
•Jól, páskar eða lík tilefni i faðmi fjölskyldunnar
•Námstengdar vinnutarnir
•Vinnulota fyrir minni og meðalstór fyrirtæki
•Dvöl tengd sköpun s.s. myndlist ritstörf og tónsmíðar.
Comments Off
English
Íslenska
Við erum á Facebook